Með því að hlaða niður eða nota forritið Jólin samþykkir þú þessa notkunarskilmála. Forritið er veitt notendum endurgjaldslaust til einkanota.
Allt efni í forritinu og á vefsvæðinu, þar með talið vörumerkið Jólin, lógó, hönnun, textar, spurningaskrá og forritakóði, er eign útgefanda og nýtur verndar íslenskra höfundaréttarlaga. Óheimilt er að afrita, endurdreifa, hagnýta í viðskiptaskyni eða bakfæra kóða forritsins án undangengins skriflegs leyfis.
Forritið vistar persónuleg skipulagsgögn þín staðbundið á tækinu. Notandi ber sjálfur ábyrgð á að taka reglulegt öryggisafrit af tækinu sínu (t.d. í gegnum iCloud). Útgefandi ber ekki ábyrgð á gögnum sem tapast vegna bilana í tækjabúnaði, uppfærslna á stýrikerfi eða eyðingar forritsins af tækinu.
Notendum er boðið að taka þátt í samfélagskönnuninni Spurning dagsins. Þátttaka er valfrjáls og fer fram með nafnlausum hætti. Óheimilt er að reyna að falsa eða hagræða niðurstöðum kannana með sjálfvirkum hætti eða misnotkun á forritaskilum.
Forritið er veitt eins og það kemur fyrir (as-is). Þótt lögð sé rík áhersla á hnökralausa virkni, réttar uppskriftir og áreiðanleika getur útgefandi ekki ábyrgst að forritið sé algjörlega án villna eða rekstrartruflana.
Útgefandi áskilur sér rétt til að uppfæra skilmála þessa eftir þörfum. Gildandi útgáfa er ávallt birt á þessari vefsíðu.